husid hrynur lyrics (by hjalmar)

Lyrics for: husid hrynur by hjalmarÞitt hús er bjart sem helgidómur. 
Þitt hús er dýrðlegt sem kóngsins slot. 
Þú átt á banka þitt kaup og krónur. 
Þú kemst víst tæplega í matarþrot. 
Og sælt er að lifa við gull og gengi. 
Þín gæfa er mikil svo björt og hlý. 
Þú hvorki sorgir né þrautir þekkir. 
Og þjónar drottni með kurt og pí. 
En milli þilja í þínu húsi 
er þrotlaust unnið hvern dag og nótt. 
Með hvössum tönnum, er nagað, nagað 
og nagað mest þegar allt er hljótt. 
Þitt hús er voldugt og viðir sterkir 
og veggir traustir með saum og hnoð. 
En hva**ar tennur sem naga og naga 
þær naga í gegn hverja máttarstoð. 
Og bráðum tapast þitt gull og gengi 
og gæfan hverfur svo björt og hlý. 
Þér finnst hann sár slíkur sleggjudómur 
en slotið hrynur með kurt og pí.
Discover Chords and Lyrics
Learn Guitar

Comments

Popular posts from this blog

things we did last summer lyrics (by dean martin)

scarlet and gold chords (by 13th floor elevators)

fantasias confidential ghetto 1999 once in a lifetime coconut lyrics (by jerry harrison)